Ég er búinn að þekkja þessa stelpu alveg í þónokkuð mörg ár, var með henni í grunnskóla og núna menntaskóla. Samt hef ég ekkert verið neitt náinn henni nema í frekar stuttan tíma.

Þetta byrjaði fyrir svona ári að mér fannst hún allt í einu mjög aðlaðandi, en það var aðeins eitthvað smá skot þá.
Svo sé ég hana aftur í haust og gjörsamlega fell fyrir henni. Var skólaferð í haust og við töluðum nokkuð mikið saman þá, þar sem þetta var yfir nætur. Og svo leið að skólaballi og ég hitti hana þar. Við vorum bæði búin að drekka eitthvað og við fórum að dansa eitthvað. Eitt leiddi að öðru og við vorum allt í einu byrjuð að kyssast þarna á miðju dansgólfinu. Þarna var ég bara “Vá, ég er heppinn…” og við gerðum það í nokkurn tíma en svo bara gerðist ekkert meira það kvöldið.
Eftir það erum við búin að tala saman nokkuð í skólanum og eitthvað utan skóla en ég get ekki hætt að hugsa um hana og ég vil meira. Málið er ég veit ekki alveg hvað hún vill því hún er búin að vera að sýna einhvern áhuga á öðrum strákum líka. Hvernig á ég að fara að því að “vinna hug hennar”?