Hæhæ:)

Þannig er mál með vexti að ég fór til Danmerkur með vinkonum mínum og djammaði mikið og svona.. Allavega, þá á seinasta djamminu er strákur sem að býður mér upp í dans og ég var einhvernvegin ekki alveg tilbúin, var nýkomin á staðinn og var að fara að drekka skotin mín sem ég hafði keypt, en ég ákvað að segja bara samt já og dansaði bara og drakk skotin á sama tíma og svona.

Hann segir mér ýmislegt um sig og svona, er rosalega sætur, sá það ekki strax, og svo kyssi ég hann og ég er eiginlega að kyssa hann allt kvöldið.

Svo fer að líða á og hann spyr mig hvort ég vilji koma heim með honum og ég vissi að hann vildi bara sofa hjá mér en ég vildi það ekki. Fékk númerið hjá honum og svona, lenti í smá rifrildi við vinkonur mínar sem kemur í rauninni málinu ekki við, en ég bara get ekki hætt að hugsa um hann!:|

Það er svo margt sem ég veit að gæti ekki gengið upp, í fyrsta lagi að hann vildi augljóslega bara sofa hjá mér og vill auðvitað ekkert meir af mér en það, í öðru lagi býr hann út í Danmörku og ég Íslandi.. en ég er nú samt að spá í að fara í lýðháskóla þar, en það er annað mál… svo veit ég ekki.. í þriðja lagi þekki ég hann ekki neitt:|

En ég bara get ekki hætt að hugsa um hann… er bara búin að vera að hugsa um margar aðferðir til að kynnast honum betur, eins og reyna að redda msninu hans, en fæ það ekki… hef sent honum sms en veit hann mun ekkert svara því.. held meirað segja að hann er ekkert mikið á netinu né svona því að hann virtist frekar upptekinn, svona að byggja upp fótboltaferil og svona..

Æj, vá mér finnst hann bara svo yndislegur:/ Og það er svo mikil synd að ég er örugglega núll og nix fyrir honum og ég sit bara hérna eftir með einhverja draumóra:|