Það er eitt sem mér finnst fyndið, og það er þegar stelpur eru svona obbosslega sniðugar og verða “hard to get”… reyna að fá mann til að hlaupa á eftir sér, sem að maður hreinlega nennir bara ekki.

Eitt sem að þið gellur skiljið ekki… ef að maður kynnist gellu og hún byrjar svona “hard to get”, nennir maður ekki að hafa fyrir því, það er nóg af fiskum í sjónum sem að leika sér ekki eins og fífl að svona málum.

Það er álíka gamaldags að gellurnar séu svona geðveikt hard to get, eins og að karlinn sé meistari heimilisins og roti “kérlinguna” sé hún með kjaft.

… Ég er nú ekki að meina að ég sé eitthvað ýtinn eða karlremba, mér finnst það bara hlægilegt að margar stelpur haldi að þetta virki. Til að ná sér í kall. Síðan eru líka margir sem að eru með lítið sjálfstraust og strax og einhver gell gerir þetta stekkur hann í baklás eins og að hún hafi drepið hundinn hans og sent hann í pósti. hehe

Jæjja, þetta er þá mitt álit, ykkar?