Er búin að vera með þessum hreint og beint yyyyndislega gaur í mánuð núna og aldrei upplifað aðra eins hamingju.
Nú nálgast mánaðar afmælið og mér langaði að spyrja um álit ykkar.
Vinkona mín á þennan veitingarstað og við höfum talað um að fara þangað og borða, enn ekkert að ákveða né neitt…bara koma með þessa tillögu.
Og mér datt í hug hvort það væri lummó ef ég byði honum þangað á mánaðarafmælinu?
ég er 22, og hann 28 þannig við erum komin yfir þetta teen-couple dæmi og njótum félagsskaps hvorsannars í hversdagsleikanum, just so you know :P


Hvað finnst fólki um að stelpan bjóði stráknum út að borða? Hvað gerir fólk á mánaðarafmælinu? Er fagnað? Fer það kannski alveg eftir parinu?
cilitra.com