Traustur.....eða ekki? Ég er aðeins 17 ára en ég held ég geti alveg fullyrt það að ég hef gengið í gegnum fleiri erfiðleika en flestir unglingar á mínum aldri.. Ástfangin af strák sem er/var? í dópi, ólétt og missti æsku og bestu vinkonu mína, og þetta er aðeins brotabrot hversu sorglega sem það hljómar! Samt finnst mér virkilega gaman að vera til, og ég verð bara að takast á við það sem gerist í mínu lífi, hvort sem það er slæmt eða gott. En mér finnst gott að fá álit fólks, sérstaklega svona á mínum aldri… Þessvegna drop-aði ég þessu hérna inn, bara ef einhver hefur áhuga á að lesa þetta..

Í fyrra í Janúar kynntist ég stráki sem ég er ennþá ástfangin af. Besti tími okkar var þegar við vorum að byrja saman og fyrstu mánuðurnir, en seinna breyttist það í martröð fyrir mér, ég komst að því að hann væri að nota fíkniefni og reyna að fela það fyrir mér. En þar sem ég bý í svo liltum bæjarfélagi fréttast allt, og auðvitað fékk ég að vita að kærastinn minn væri að nota dóp. Fljótlega eftir þennan yndislega tíma sem leið alltof hratt og plús þessar slæmu stundir sem við eyddum í að rífast um vandamál hans þá hættum við saman. En síðan þá þá höfum við ekki getað látið hvort annað í friði, við erum bæði svo sjúklega ástfangin, mér hefur aldrei liðið svona. Við reyndar gátum haldið okkur fjarri frá hvort öðru í MAX 4 mánuði á þessum næstum 2 árum sem við höfum þekkst, en þá vorum við aftur byrjuð að tala saman. En núna nýlega bara í enda ágúst ákváðum við að byrja alveg upp á nýtt og reyna. Við erum búin að endast hingað til sátt við lífið, en það sem er að naga mig öllum stundum… er hann ennþá að dópa?? Ég fæ stundum ónota tilfiningu um að hann sé að fara á bakvið mig þó hann segist ekki vera að því. Eftir að við byrjuðum saman í þetta skipti er hann einu sinni búinn að viðurkenna fyrir mér í byrjun að hann hefði reykt hass. Og það er það sem hann er aðalega háður af fíkniefnum!! Ég varð auðvitað sár og ótrúlega reið útí hann.
Ég veit við eigum aldrei eftir að geta slitið okkur frá hvort öðru, en getur maður treyst svona fólki? :|