Síðustu nótt dreymdi mig undarlegasta draum sem mig hefur nokkurntímann dreymt…
Þannig var að ég og vinur minn vorum saman í liði í einhverjum mjög svo heimskulegum raunveruleikaþætti sem gékk útá það að ná í einhvern hlut sem ég man ekki eftir uppá einhverju fjalli.

Það voru að sjálfsögðu önnur lið þarna, og 2 þeirra skipuð nokkrum stelpum sem ég þekki. Síðan var George Lukas (leikstjóri Star Wars) í einu liðinu og eitthvað fleira…

En allaveganna, ég og ein af þessum stelpum úr hinum liðunum fórum bara og ignorðum keppnina og eyddum einhverjum slatta af tíma einhverjum risa-sumarbústað þarna rétt hjá og vorum bara í tómu tjilli allann tímann, og eftir að ég vaknaði í morgunn get ég ekki hætt að hugsa um þessa ákveðnu stelpu….

Og það sem er skemmtilegra við það er að hún á kærast og er líklega það sem kemst nálægast því að vera fullkomin andstæða mín. Æðislegt…

Ég hef þekkt þessa stlpu í langann tíma en við höfum aldrei verið einhverjir miklir vinir.

Einhver ráð til að komast yfir þetta?
„It is not worth an intelligent man's time to be in the majority. By definition, there are already enough people to do that.“