,,jæja, maður er í þessum pakkanum núna, en reyndar, þetta ljóð samdi ég fyrir löngu, þetta var svona, mín innsta þrá, að elska og finna fyrir ást"



Finnur þú fingur mína
Snerta fingur þína
Af innilegri ást
Finnur þú hjarta mitt
Slá í takt við þitt
Af innilegri ást

Finnur þú tímann líða
Og hvað ég læt hann bíða
Af innilegri ást
Finnur þú hvernig ég
Horfi á þig
Af innilegri ást

Finnur þú hvernig við
Þjótum áfram
Af innilegri ást
Finnur þú hvernig allt stoppar
Hvernig allt okkar
Hverfur…
Af innilegri ást?




Christiana