Þannig er mál með vexti að ég er á öðru ári í menntaskóla, og núna í byrjun þessa skólaárs kom ný stelpa í bekkinn…

ég kynntist henni aðeins…
ég er á heimavist, það þurfti að koma fram svo þetta myndi skýra sig það sem ég segi næst. Á mánudagskvöldið var svokallað “sleepover” eitt af mörgum.
Við vorum 6 þarna inni í tvíbreiðu rúmi,3 strákar og 3 stelpur. Ég semsagt lá hliðin á henni, og þetta kvöld/nótt byrjaði á að það var svo lítið pláss að við þurftum að vera mjög nálægt hvoru öðru.
og ég og þessi vorum frekar nálægt hvoru öðru.. sem endaði með því að við héldum utan um hvort annað alla nóttina, og já kúrðum allann tímann.
Hafði ekki í mér að reyna að kyssa hana, var of stressaður/feiminn til að gera það…

Þetta var ein besta nótt lífs míns lengi…

svo daginn eftir var eins og sæi geðveikt eftir þessu, talaði mjög lítið við mig, og hefur eiginlega ekkert talað við mig eftir þetta.

Svo eru þessir 2 aðrir strákar þvílíkt að reyna við hana núna.. og alltaf þegar ég sé það að þá hugsa ég alltaf með mér “jahá.. þessi að reyna við hana.. jæja.. þá get ég gleymt þessu…”

er með númerið hennar.. en þori ekki(veit ekki hvað á að spyrja hana um líka) hvort hún sæi eftir þessu eða eitthvað:S og mér finnst líka svo vandræðanlegt eitthvað að senda henni sms um þetta og svo hitti ég haan daglega út þessa viku…:S

Þetta var nokkurnveginn bara útrás hjá mér…

og þið megið alveg svara einhverju um þetta

kveðja..
binnist