sko þannig laga séð þá er ég algjör byrjandi í þessu og hef aldrei átt mjög auðvelt að tala við stelpur.
En ég var að byrja í menntaskóla, í busaferðinni sá ég hóp af stelpum sem ég þekkti ekkert en ég kannaðist aðeins við eina gaurinn í hópnum svo ég ákvað að setjast hjá þeim.
Well ég get ekki sagt annað en það gekk ágætlega og við töluðum saman og ég kynntist þeim ágætlega, en hins vegar fór ég að taka eftir því að ein gullfalleg stelpa þarna var að horfa óvenju mikið á mig, hún leit út fyrir að vera mjög feimin og sagði mjög lítið. Það sem eftir var að nóttinni þá svona skiptumst við svona á að fylgjast með hvort öðru í laumi, og náðum augncontact nokkrum sinnum.
Ég gat einfaldlega ekki talið í mig kjark til að tala meira við hana en ég er svona að spá, hefur hún áhuga á mér miðað við það sem ég er búinn að segja?