Þetta er svona nótt sem ég get ekki sofið. Nótt sem ég sit andvaka bara hugsa um eina manneskju.

Mig langar svo að segja þér frá þessu, hvernig þessi tilfinning er, en bara get það ekki, sumir segja að ég þekki þig alls ekki, sumir segja að þetta sé bara skot.

En nei, eina manneskjan sem trúir mér núna er besta vinkona mín. Hún heldur þvi fram að ég sé bara yfir mig ástfangin. Mig langar ekki að trúa henni, en ég get ekki annað. En ég get ekki sagt þér frá þessu, ég get ekkert gert nema leyna þessu, en ég bara þoli ekki að leyna hlutum lengur, mig langar að segja þér, hafa færi á að kynnast þér betur, mig langar að kyssa þig bless. :(

Ég vona… að ég safni einvherntímann upp kjarki til að gera þetta, en þangað til, þá elska ég þig aðeins sem vin :****

(L)

Bætt við 4. september 2006 - 02:32
Djöfull sökka ég í að gera svona útrásarkorka… þeir eru víst skondnir hjá mér…

well takk ;)

:***