Nú styttist í það að stelpan sem ég er búinn að vera tala mikið við undanfarna mánuði er á leið til útlanda sem skiptinemi og kemur ekki aftur heim fyrr en eftir ca. 1 ár. Hún á eflaust eftir að vera mikið á netinu, MSN og þess háttar, en mig langar mikið til að skrifa bréf til hennar, handskrifuð bréf. Það er mikið skemmtilegra fyrir fólk sem er að fara út sem skiptinemar að fá öðru hverju handskrifuð bréf. En ég hef verið að pæla, hvað get ég eiginlega skrifað í þessi bréf ?