Sæl :)

Til þess að þið vitið um hvað ég er að tala verðið þið að lesa “Netsamband -HJÁLP” ef þið nennið, þetta var ansi langt hjá mér :P

Ég get líka reynt að stytta þetta aðeins hérna..sko..málið var að ég var að tala við þennan yndislega strák á netinu..ég hef aldrei verið hrifin af neinum strák, en ég gjörsamlega féll fyrir honum…

..við rifumst oft, við rifumst rosalega oft, en á eftir það “elskuðum” við hvort annað enn meira…og ástin varð meiri eftir hvert rifrildi…

Ég talaði við hann í síma, og..ohh, hann var með yndislega rödd..elskaði hvernig hann talaði..og þegar hann grét í símann..þegar hann hló..það snerti mig svo mikið..

..Ég elskaði hann útaf lífinu…en hann laug að mér, laug og laug og laug og á endanum vissi ég ekki hvað ég ætti að halda..

Og það var ekki bara það…hann vildi alltaf halda mér í tölvunni. Alltaf. Ef ég vildi fara á kóræfingar, leiklistaræfingar, böll, eða eitthvað, var alltaf rosalega mikið mál…hann meira að segja laug að mér að hann væri í lífshættu…hann ætlaði að fremja sjálfsmorð…og það var það sem ég óttaðist mest…ég elskaði hann svo mikið, að ég mundi fórna mér fyrir hann..

En þetta gékk ekki, meir leið ekki vel í þessu sambandi. Auðvitað komu yndislegir tímar hjá okkur saman, en alltaf ef ég þurfti að fara frá tölvunni versnaði þetta og var allveg hryllilegt.

19 ágúst - 21 fór ég í ferðalag, svo ég talaði ekkert við strákinn þá. Þegar ég kom heim talaði ég heldur ekki við hann. Svo senti ég honum bréf, með öllum tilfinningunum mínum, ég elskaði hann, en gæti þetta ekki, útskýrði afhverju, og sagði bara allt við hann. Ég skipti um msn, og símanúmer, svo núna getur hann aldrei náð í mig..

Seinustu þrjá daga hef ég verið miður mín..reynt að hugsa ekki um hann..reyna að forðast tilhugsunina um að hann hafi framið sjálfsmorð..reyna að gleyma honum..en það virkaði ekki..ég sá ekki eftir að hafa gert þetta, en mig langaði í hann aftur..mið langaði svo að við gætum verið saman..ég var búin að tala við hann í 9 mánuði, næstum á hverjum degi..og ég vissi allt um hann, og hafði treyst honum fyrir öllu. Mér leið eins og ég hafði misst ástvin…eins og einhver hafi dáið frá mér..og þetta er svipað..ég mun aldrei sjá hann aftur..og ég var svo viss um að hann hafi framið sjálfsmorð.

Núna sé ég virklega eftir því að hafa liðið svona illa af þessu, og grátið á næturnar. Ég var að deyja úr áhyggjum, svo ég lét góða vinkonu mína adda honum á msn, og gá hvort hann væri online. Hann var það. Hún talaði pínu við hann, og hvað ætli hann hafi sagt?

Hann fór að daðra við hana! Hann sagði henni hvað hún væri frábær, hversu “sweet” hún væri, og að hún væri sú besta sem hann hefði talað við.

En þetta er ekki allt, eftir þetta, sagðist hann elska hana. Hann sagðist elska hana. Auðvitað blockaði hún hann og deletaði honum eftir þetta.

Þessi aumkunnarlegi hálfviti er núna semsagt að reyna að finna aðra auðtrúa stelpu sem trúir á góðsemd hans. Ég er alls ekki auðtrúa og er mjög vandlát á stráka, en ég féll fyrir honum..hann lítur út fyrir að vera hinn fullkomni strákur (allavegana fyrir mig)

Það er eitthvað stór allvarlegt að honum. Það sem hann vill, er drama og drama, og það sem er mikilvægast, hafa völdinn. En samt sem áður tók ég heftir því að ég átti alltaf að stjórna þess hvernig örlög hans eða okkar áttu að enda.

Hann er farinn, og mér hefur aldrei verið svona létt í lífi mínu, í 9 mánuði hef ég verið eins og föst í fangelsi, en núna er ég frjáls og líður stórkostlega :) Kanski eruð þið hissa yfir því að mér sé létt, þegar ég er með sönnun fyrir því hversu ógeðslegur hann er, en málið er það, að þetta varð til þess að ég hætti að elska hann. Hann laug að mér, hann notaði mig, hann vildi stjórna mér..en alltaf elskaði ég hann..meira en nokkuð annað. En ekki lengur, ég hata hann, og er svo feginn að hann sé farin úr lífi mínu fyrir fullt og allt.

En það er aðalega tvem manneskjum að þakka, að ég er eins og ég er núna. Án Aerith og Fróðleiksmola hefði ég aldrei getað þetta, þá væri ég enþá að tala við þennan skíthæl, og myndi líklega aldrei hætta því.

Takk Aerith, þú hefur alltaf stutt við bakið á mér, og gerir enn ;) Þú ert yndisleg :)

Takk Fróðleiksmoli, þú hjálpaðir mér algjörlega í gegnum þetta ferli. Það gat eingin sannfært mig um hversu hryllilegur Jordan væri, en þú gast það. Það er aðalega þér að þakka að ég er svona haminjusöm í dag :)

Ég vil líka þakka öllum þeim sem svöruðu greininni minni hér á huga :) Ég fór virkilega að hugsa og þið hafði hjálpað mér mjög mikið:)

Það er ykkur að þakka að ég er frjáls núna! ;)
An eye for an eye makes the whole world blind