Maður er alltaf að heyra, hægri vinstri frá stelpum sem vilja vita hvað strákar vilja.

Jæja stelpur, hvernig er það.. Hvernig stráka viljið þið?

Ég veit ekki alveg hvernig ég vil. Ég hef einhvernveginn oftast dregist að brúnum augum, það er samt ekki einsog ég fari út að leita af þeim, þau koma bara til mín ;)

Í raununni leita ég bara af einhverjum sem heillar mig, og hefur góðann persónuleika. Og plús eitt, strák sem ég get rifist við. Þá meina ég að EF við förum að rífast að hann segji ekki ‘Já, ok elskan, þá það’ Og hann springi einn daginn, ég er nefninlega þannig manneskja að ef ég er ósátt við einhvern þá læt ég það ekki beint kyrrt liggja, ég vil oftast frekar klára málið.

En nú er ég komið útí eitthvað allt annað. Best að feitletra spurninguna svo einhver svari þessu frekar en renni bara yfir þetta og segji.. Æjjj, nenni ekkert að lesa þetta.

Ok, ég er hætt.