Ég bendi þeim á sem vita ekki málavexti að skoða þennan kork fyrst áður en þið lesið þennan:
http://hugi.is/romantik/threads.php?page=view&contentId=3844028

Okey ég kom inn á minn fyrrverandi á msn á þriðjudaginn, sagðist þurfa að spurja hann að einu (ætlaði þá að spurja hann hvort það væri satt að vinur hans hafi beðið um leyfi til að reyna við mig og hann hafi gefið það leyfi). En hann var away þannig að ég bjóst ekkert endilega við því að hann myndi svara… Síðan talaði ég við vininn og er svona aðeins búin að tala við hann í vikunni…
Jæja síðan rétt áðan kom fyrrverandi inn á msn hjá mér, spurði hvað ég vildi spurja hann að, svo ég spurði hann. Þá kom hann af fjöllum og þverneitaði fyrir það… Sagði síðan að eitthvað um það að vinur hans væri oft búinn að reyna við hans fyrrverandi…

Ég bara veit ekki hverju ég á að trúa! Núna er ég ekki viss um hvað ég á að gera í sambandi við vininn, hvort ég eigi að segja honum frá þessu eða hvað…
Hvað skal gjöra? *hugshugs*
Ég finn til, þess vegna er ég