þannig er mál með vexti að ég kynntist þessari stúlku fyrir svona viku, Alveg gullfalleg stúlka, anyway, ég fór að tala mikið við hana á msn og í síma, svo loksins í gær ákvað ég að hitta hana, við ákváðum allt þannig og fleira í þeim dúr

En núna áðan, í kvöld fór ég heim til hennar til að hitta foreldrana eins og gengur og gerist, þar var gert það sama og venjulega og allt það, svo eftir að ég kom heim, sagði hún á msn að við gætum ekki hisst oftar og hún mætti ekki vera með mér lengur því foreldrum hennar hafi fundist ég ekki nógu góður fyrir hana, samt sagði hún sjálf að ég væri skemmtilegur og allt það, en hún getur samt ekki hitt mig vegna foreldranna

Er eitthvað sem ég get gert til að fá foreldrana til að líka við mig og með því fengið að hitta hana oftar??

Vissi ekki alveg hvort þetta ætti heima hér

Með fyrirfram þökkum oRiley
Eyes down, round and round, let's all sit and watch the moneygoround.