Hæ hæ

Ég ákvað að búa til nýjan kork fyrir spurningarnar sem ég hef, því ólíklegt að allir lesi það sem stendur þar fyrir neðan því ég er búin að fá svo mörg svör, takk fyrir það, rosalega gott að fá svona mörg og góð svör :)

málið er bara..æ, ég er búin að vera að reyna að tala við hann bara lítið, og það hefur verið svona allt í lagi…hann orðið reiður og síðan lagast…

..málið er bara í dag (eins og flesta daga) var ég að vinna til 19.00 (20.00 að hans tíma) eftir það fór ég í partý til vina minna, svo þegar ég kom heim, þá var hann búin að senda mér skilaboð..fyrst að hann væri ekki ánægður með þetta en elskaði mig svo mikið..en tíminn leið og ég kom ekki..þá sagði hann eitthvað, en aðalmálið er að hann sagði að ef að ég mundi fara í vinnuna á morgunn, þá mindi hann binda enda á líf sitt..hvað á ég að gera?

Ég vil ekki að hann ráðskist með mig, og stjórni því hvað ég geri, en ég er svo hrædd um að ef ég geri þetta, þá muni hann fremja sjálfsmorð, eða ekki..en allavega láta mig halda það…og ég muni lifa með það á samviskuni, það sem eftir er, …er það mér að kenna að strákurinn sem ég elska fyrirfór sér eða ekki? …sama hvað þið segið, þá held ég að ég elski hann…og ég held ekki að ég geti elskað einhvern annan..

..nennið þið að svara strax og þið eruð búin að lesa þetta og segja ykkar skoðun? ..helst í kvöld ef þið lesið þetta þá..
An eye for an eye makes the whole world blind