Æi núna líður mér geðveikt illa. Sko, ég á kærasta og við erum búin að vera saman í meira en 1 ár. Hann er núna staddur útí útlöndum og í gær var ég í partýi og þá sagði sameiginlegur vinur okkar, vinur: ,,Ef þið verðið saman allt ykkar líf þá á hann pottþétt eftir að halda framhjá þér."
Og vá hvað mér leið illa að heyra þetta og núna er ég á algjörum bömmer en get ekkert verið að hringja í kærastann minn, það er svo dýrt.
Kærastinn minn segir alltaf að hann muni ALDREI halda framhjá mér en þegar maður heyrir eitthvað svona frá besta vini hans þá er það frekar óþæginlegt.