Jæja gott fólk, kvenfólk, kallar..rómantík. Æði sko.

En pínku babb í bátinn..eða samt ekki, svona er bara lífið.

Ég semsagt hitti stúlku, rosalega falleg, skemmtileg og eiginlega æði í flest alla staði..eftir svona frekar stutt kynni. Ég semsagt eyddi smá tíma með henni. Það fór nokkuð vel í hana, ég fann allavegna þessa skemmtilegu strauma..rafmagn á milli okkar sko og stöðug augnagot. Náttúrulega ekkert nema skemmtilegt :] Seinna um kvöldið var svo kúr komið inní myndina og var kvatt í faðmlagi, allt saklaust og svona..já..skemmtilegt..var ég kannski búinn að segja það.

Núna kemur babbinn, stelpan er víst á föstu. Svosem fínt fyrir hana, verra fyrir mig afþví að þetta er fín stelpa sem ég gæti alveg hugsað mér eitthvað með henni.

Ég kem til með að hitta hana meira í framtíðinni, óhjákvæmilegt…svo..jaa..það er kannski ekki beint spurning til ykkar að þessu sinni. Ég færi aldrei að eyðileggja samband hjá einhverjum vísvitandi en pælingin er hvort að maður eigi að halda þessum straumum á lífi…maður veit aldrei hvað sambönd endast lengi..hehe..