Ég var eitt gott kvöldið niðrí bæ að skemmta mér með vinkonum mínum (sem eru einungis vinkonur) og við fórum inn á ónefndan bar í miðbænum. Þar dönsuðum við af okkur rassgatið og það var rosalega gaman hjá okkur. Á þessum tíma var ég með stelpu og hún var líka að djamma en með vinkonum sínum á öðrum bar og við ætluðum bara að hittast niðrí bæ. En já við dönsuðum og dönsuðum og eins og þið vitið kannski þá er það venjan að það er frekar heitt á þessum skemmtistöðum þannig að ég fór af gólfinu og fékk mér sæti til þess að kæla mig niður. Þegar ég var búinn að sitja þarna í dágóðan tíma þá settist við hliðina á mér sæt stelpa og spurði mig hvort að ég ætti eld, ég svaraði játandi og gaf henni eld. Þá var ísinn brotinn og við byrjuðum að spjalla saman um heima og geyma en aðallega um fólkið í kringum okkur því það var mjög einkennilegt lið þarna :D en hvað um það, við spjölluðum í góðan tíma og svo allt í einu kom kærastan mín og tók í hendina á mér. Ég bjóst við að hún yrði alveg brjáluð yfir því að ég var að spjalla við einhverja aðra gellu en svo var ekki. Enda ekkert nema létt spjall í gangi. Þessi dularfulla stelpa sagði mér hvað hún hét en aðeins fyrra nafn, ekkert annað en það. Hún heitir frekar óalgengu nafni þannig að það var ekki mikið mál að verði sér um númerið hennar eftir á. Ég er búinn að hringja frekar oft í hana en hún hefur aldrei svarað. Þetta var heimanúmer þannig að ég bjóst við að hún væri bara alltaf úti eða í vinnuni eða eitthvað. Þannig að ég sá mér leik og sendi henni bréf ásamt nafni mínu og símanúmeri og bað hana um að hringja í mig því mig langaði að kynnast henni betur. (vill benda á það að ég er ekki með kærustunni enþá) En já ég sendi bréfið og er hæst ánægður með það að hafa látið verða að því :) segji í bréfinu að ef þetta sé ekki sú manneskja sem á við þá væri það gott ef hún gæti sent mér til baka að svo sé. En daginn eftir að ég sendi bréfið fæ ég símhringingu og það var private number sem hringdi… ég var heima hjá mér að glápa á video og var ekkert að kippa mér upp við að þetta sé private number og svara… þá er karlmaður í símanum og spyr mig hvort að ég hafi verið að senda konunni hans bréf!!! ég alveg “ha hvað áttu við?” já þá var þetta kallinn hennar… þá er kellingin gift og á barn með einhverjum gaur… þegar við vorum á barnum þá var alveg greinilegt að hún var að reyna við mig… því þegar ég sagði henni hvað ég gerði og hver plönin mín væru í framtíðinni þá sagði hún að ég væri “the real thing”

Mín spurning er sú hvað fær fólk til að gera svona? reyna við einhvern á bar þegar það á barn og er gift? og það er enginn misskilningur að hún hafi verið að reyna við mig því að vinkonur mínar sáu þetta og fyrrverandi kærastan líka… ég verð að játa það að ég var frekar svekktur með að hún skildi vera gift, því þetta var alveg heví skemmtileg gella og alveg með minn húmor og allt :)

En svona er lífið… þegar mar ætlar að sækjast eftir einhverju sem mar vill þá fær mar bara blauta tusku í andlitið!!! :D
Going to be a while? Grab a Brynjar!!