ég var að horfa á fréttirnar rétt áðan og þar var frétt um ástina :D alveg merkilegt að ég hafi rekist á þetta eins sjaldan og ég horfi á fréttir… en þessi frétt hljómaði þannig að það var maður sem vann að rannsókn um hvernig fólk verður ástfangið. Hann segir að fólk sem er ástfangið hafi verið vinir til lengri tíma, og að þetta gerist ekki 1, 2 og 3!! það hefur auðvitað gerst eins og flestir vita en er mun sjaldgæfara. Þannig að ef manni langar að verða ástfanginn þá er um að gera að gefa sér tíma fyrir þetta.

Ég veit að ég á ekki eftir að fara eftir þessu fyrst því það tekur aðeins tíma að aðlaga sig að svona þolinmæði og ró :) en mar verður að gera það. En engu að síður er þetta skemmtileg rannsókn :)
Going to be a while? Grab a Brynjar!!