Ég hef verið að spá… ég er einsamall ungur drengur og hef verið það í þó nokkurn tíma :) en hef verið með nokkrum stelpum í gegnum æfina.

Núna er þessi spurning sem liggur á vörum mér… á þetta bara vera svona? Á ég alltaf eftir að byrja með stelpum og svo hætta með þeim út af hlutirnir ganga ekki upp? Er sumum bara ætlað að vera einir?

Ég hreinlega get ekki svarað þessu sjálfur því þetta veltist of mikið fyrir mér.

Ég veit ekki hvar vandamálið er einu sinni… hvort það sé ég eða stelpan… en ég reyni með mínu besta móti að vera góður gaur og koma fram við náungann eins og ég vill láta koma fram við mig, en það stangast alltaf eitthvað á… kannskir á ég bara að slappa af og láta þetta rúlla bara?

Hjálpiði mér að svara þessu bulli hjá mér…
Going to be a while? Grab a Brynjar!!