halló

ég sendi inn þráð fyrir 2 dögum sem var um það að ég hitti gullfallega stelpu sem ég féll algjörlega fyrir strax, en eins og kannski einhver man eftir sem nennti að lesa þetta þá var þetta hálfgert bull, og sá ég það daginn eftir að ég var í einhverri vímu eftir að hafa hitt hana, en komast svo að því að hún á kærasta og var þá í ruglinu bara… ég lét delete-a þræðinum vegna þess að það sem stóð þarna var skrifað í einhverju daze-i (tek það fram að ég var ekki á neinum lyfjum eða neinu slíku þegar ég skrifaði þetta :P) Gæti vel verið að ég sé einhverju rugli núna ég bara fatta það ekki en jæja…

En þegar ég sé myndir af henni líður mér bara illa því ég veit að hún er með öðrum gaur og ég get ekki verið með henni… Ég er búinn að vera í rugli síðan ég hitti hana og komast að því að hún á kærasta, samdi meirað segja ljóð um hana og hvernig við hittumst, og það er eitthvað sem mér hefði ALDREI dottið í hug að ég myndi gera í náinni framtíð…

Mig langar bara að hringja í hana núna og segja henni hvernig mér líður og hvað mér finnst hún frábær en ég tel mig vita að hún myndi ekki henda burt rúmlega árssambandi + hún býr með honum núna í sumar (soldið í burtu frá þar sem ég á heima) fyrir mig sem hún alveg að fýla ágætlega held ég útfrá þessu samtali milli okkar.

En ég hef alvarlega íhugað að þegar hún flytur aftur heim til sín eftir sumarið að hitta hana og hreinlega að reynað fá hana til mín, þó það sé nú ekki “clean” gagnvart kærastanum… en for all i know þá býr kærastinn heima hjá henni á “veturna” (semsagt ekki í sumar) en mig langar svo mikið að vera með henni að ég get ekki hugsað mér að gera ekkert í þessu. Ég veit að þessi korkur er kannski orðinn að einhverju bulli en það eru áhrifin sem þetta hefur á mig. please gefið mér einhver ráð því ég veit ekki hvað ég á að gera :(:( tek það fram að ég er 17 kk og hún er ári yngri, þetta er ekkert puppy love-13 ára gelgju rugl… Efast þó samt um að einhver hafi nennt að lesa þetta, hvað þá svara… :/