Þannig eru málin er að ég er að verða brjálaður.. Byrjum samt aðeins á byrjun.

Ég er buinn að vera hrifinn af þessari stelpu í sennilega yfir 2ár, og þekki hana vel, veit nánast allt sem þarf að vita, þekki alla fjölskylduna hennar og hún þekkir mig. Höfum verið vinir síðan ég veit ekki hvenar.

Það hefur aldrei neitt skéð á milli okkar enn það hefur alltaf verið eitthvað þarna á milli get varla útskýrt það enn svona er þetta.

Ég er sennilega sá mest feimnasti strákur í heimi og hún mest feimnasta stelpa í heimi, við erum nánast alveg eins. Allt sem hefur skéð í hennar æsku hefur skéð í minni, við fermdumst meira seigja saman.

Hinsvegar á seinustu mánuðum höfum við ekki talast mjög mikið saman, eða varla bara eitthvað “hæ” og varla meira enn það. Sem ég sé nátturulega eftir núna þarsem ég er að fara seigja ykkur frá einu fylleríi.

Núna nýlega þá var sennilega eitt mesta djamm sem ég hef nokkurn tímann farið á, allir fullir meira seigja fólk sem hefur ekki einu sinni bragðað malt voru á rassgatinu. Dagurinn byrjaði þannig að við vinirnir hittumst og spjölluðum saman og svona, fórum síðan heim til þessarar stelpu sem ég er að tala um sem við skulum bara kalla Hönnu. Fullt af krökkum heima hjá Hönnu að grilla sér mat og svona ekkert byrjað að drekka strax. Svona er þetta í svona 1-2 klst þangað til að við loksins rífum upp vínið og förum út á djammið. Ég verð samferða besta vini mínum sem við skulum kalla Palla alla leið að stað sem er frekar svona veit ekki hvernig ég seigji þetta “innilokaður” allavega ekki mikið af fólki þarna og ekki mikil afskipti frá löggunni.

Erum þarna að skemmta okkur í 2-3 klst öll kominn vel í glas, Hanna orðinn vel full, Palli nærri dauður og ég tjah, 3 kyppur og ég er goody ennþá. Og já þarna erum við öll að skemmta okkur þegar ég fer eitthvað að grínast í Hönnu og svona léttvægt þegar hún allt í einu ræðst á mig og kyssir mig. Þarna hafði verið stundin sem ég hafði dreymt um ég veit ekki hvað lengi enn hafði aldrei þorað til að gera eitthvað í. Eftir þennan koss komu fleiri kossar, og tjah næstum restina af nóttinni, vorum NÆSTUM alltaf saman.

Ástæðan afhverju ég skrifaði NÆSTUM með stórum stöfum er þarsem vandamálið kemur inní, þegar ég skila henni til vinkonu sinnar sem ætlar eitthvað að fara rabba við hana held ég áfram eitthvert burt (Tek inní að þarna var löggan buinn að raida staðinn og við þurftum að fara) krakkarnir hittumst einhversstaðar út í buska aftur og höldum áfram að skemmta okkur, ég byrjaður að hafa nokkrar áhyggjur af Hönnu þarsem ég hafði ekkert séð hana síðan ég skildi hana eftir hjá vinkonu sinni. Fæ ég þær ekki yndislegu fréttir að Palli ss. besti vinur minn, hafi verið að kyssa Hönnu líka. Þarna var ég buinn með kassa af bjór, og orðinn vel útúrtjúllaður (skil ekki enn afhverju ég var ekki löngu dauður, þá hefði ég kanski losnað við þetta vesen)

Ég fer í eitthvað flog og byrja að labba eitthvert út í rassgat nánar tiltekið að sjónum þarsem tjah, mér leið ekkert það vel og röksemin var ekki á réttum stað. Þegar ég er kominn 2/3 af leiðinni er ég stoppaður af vini minum sem seigjir mér að hætta þessari vitleysu og fara til við hana núna og seigja henni að velja milli mín og besta vinar míns. Ég fer eitthvað að rífast við hann og já endar með því að ég fer aftur á staðinn sem við vorum á og byrja að leita að henni. Þegar ég finn hana er hún að kyssa besta vin minn og ég er natturulega ekki sáttur og strunsa burt til hina krakkana og leggst í hálfgert þunglyngdi í 10 min þegar Hanna hleypur á eftir mér og seigjir mér að við þurfum að tala saman.

Við leiðumst eitthvað afsíðist og erum eitthvað að kela þar þegar hún seigjir að hún sé skotin í mér, ég nátturulega ljóma upp og hugsa með mér “yes, loksins fæ ég það sem mig hefur dreymt um” og seigji við hana að ég hafði alltaf viljað þetta þegar hún seigjir að það sé annað vandamál að hún sé líka skotin í Palla.

Svo seigjir hún að hún hafi buinn að vera skotin í mér síðan fyrir sirka 2 árum einsog ég byrjaði að vera skotin í henni enn hafi alltaf verið svo hrædd um að gera eitthvað. Ég fer eitthvað að væla um hvað ég vildi hana og blablabla, þegar allir krakkarnir eru á förum og hitta okkur þarna og þar er þessi besti vinur minn, ég þýt upp og ætla mér að kýla hann. Ég hleyp að honum og er kominn með hnefann á loft og er kominn á ferð með hnefann í andlitið á honum þegar ég hugsa mér að þetta sé besti vinur minn og þrykki í vegginn sem var svona 3mm frá andlitinu á honum. Hann drulluhræddur og veit ekkert hvað hann á að gera þá dreg ég hann afsíðis til að tala við hann og seigjir við hann að þetta ætti ekki að ské, 2 bestu vinir að lemja hvorn annan yfir einhverri stelpu og eitthvað okay.

Dagurinn eftir þetta skemmtilega kvöld :/ var þannig að mér leið ógeðslega illa um hvað ég hafði sagt við stelpuna og hvort hun mundi nokkuð taka við mér eftir að hafa sagt þetta. Ég fór út með vinum minum og hittum akkurat á Hönnu og vinkonu hennar og ég stend fyrir framan hana og get ekki komið upp orði því mér líður svo illa þannig ég er þarna eins og einhver andskotans ræfill. Hún fer og ég sé ennþá meira eftir því að hafa ekki sagt neitt.

2 dögum eftir fylleríið fæ ég þann kjark til að senda sms til hennar og þarsem ég er feimnasti maður í heimi þá var það mjög erfitt fyrir mig þarsem ég hélt á símanum minum í svona 3klst áður enn ég náði að skrifa niður nokkrar setningar að ég væri buinn að seigja allt sem ég vildi seigja og meinti allt með því.

Eftir nokkra klst fæ ég tilbaka sms frá henni sem er örugglega það sársaukafullasta sms sem ég hef nokkurn timann fengið sem seigjir frá því að hún mundi velja besta vin minn yfir mig og þætti þetta mjög leitt og eitthvað þannig.

Mér leið svo illa eftir þetta að ég gat varla borðað, á 3 dögum hafði ég ekkert borðað nema 1 epli og x2 kristal+

Og okay, ég er nátturulega svekktur út í vin minn þarsem hann fékk það sem ég vildi og ég fer og hitti hann úti vinnunni hans og spyr hann hreint út hvort hann og Hanna séu saman og hann svarar “já” í alvörunni þegar hann sagði þetta fannst mér eins og einhver hefði tekið svona kúlu sem er notuð til að brjóta hús með og slengt henni í magann á mér og hann spyr mig hvort mér væri alveg sama… Ég svara aðsjálfsögðu að mér væri ekki sama og að hann þyrfti að skilja það að ég mundi ekki umgangast hann jafnmikið og ég labba út.

Til að breyta gráu í svart þá er fyrsti vinnudagurinn að fara byrja og gettu hverjum ég þarf að vinna með, já það var rétt henni Hönnu. Ég gat varla horft á hana hvað þá talað við hana því í hvert skipti sem ég horfði á hana leið mér svo illa að mér langaði til að æla. Enn svona gekk þetta í svona 3-4 daga þegar ég frétti síðan af því að Hanna og Palli höfðu hætt saman, þetta var semsagt bara eitthvað plat eða eitthvað sem ég hef engan skilning á. Ég nátturulega samhryggist vini mínum það litla sem ég gat þarsem þau voru nú ekkert það lengi saman :o enn um leið líður mér betur.

Helgina eftir að ég frétti að þau höfðu hætt saman þá er ég byrjaður að treysta mér í að horfa á hana eitthvað smá í vinnunni og ótrúlegt enn satt þá er hún að því líka. Þetta er ekki þannig að við störum á hvort annað heldur ef hún er að horfa á mig þá tek ég alltaf eftir því og horfi tilbaka og horfumst í augu í svona 2-3 sekóndur áður enn þetta verður vandræðalegt og við horfum niður. Þetta er alltaf að ské. Ef ég er að labba eitthvað um á vinnustaðnum og tek eftir að hun er að horfa á horfi tilbaka þá frýs ég í sporum því ég fæ svo mikið í magann þegar ég horfi á hana.

Ég get varla talað við hana því þegar ég reyni að drulla útúr mér orðum þá er það alltaf svo asnalegt að mér langar bara að fara skalla vegg. Hún svarar mér reyndar jafn asnalega og ég spyr þannig ég býst við að við getum skallað vegginn saman :)

Þetta er gullfalleg stelpa, lítil og nett, 160-165 cm meðan ég er stór og massaður um 180-188cm þegar ég hugsa um hana þá er það aldrei neitt kynferðislegt, því ég virði hana það mikið. Þegar ég hugsa um það þá hef ég aldrei hugsað um hana kynferðislega heldur bara um að ég vill vera með henni og engum öðrum. Það er margar stelpur sem ég þekki og eru alveg fallegar enn þessi stelpa er sú sem ég vill og ég hef alltaf viljað.

En eins og ég sagði í nánast byrjun þá er ég og hún feimnustu manneskjur heims og mér finnst eins og áfengi er eina lausnin við þessari feimni því ég hef oft farið á fyllerí með þessari stelpu og þá erum við oftast bara eitthvað að tala saman um allt.

Ég vill eiginlega fá einhver svör með hvað ég get gert til að fá hana, til að láta hana ekki vera svona hrædda né feimna. Þetta er stúlka sem ég mundi gera allt fyrir.

Fyrirgefið stafsetningarvillurnar en ef þið hafið einhverjar spurningar endilega skjótið :)