Ok.. Mig langar til að bæta við korkinn sem var í Almennt og hét Rugluð!

Eftir þetta sem að gerðist( fyrir ykkur sem lásuð korkinn fyrir ofan) þá hef ég verið frekar óörugg.. Ég veit eiginlega ekkert hvað ég á að gera :S Hann er miklu glaðari núna en það er samt eins og eitthvað hafi tapast hjá mér:S

Ég þori varla að hringja í hann, hvað þá fara til hans.. Þetta var allt útaf því.. Ég var svo mikið hjá honum! En sko gallinn er að það er ekkert rosalega skemmtilegt heima fyrir heldur, hann var eiginlega svona mitt shelter from the storm.. En núna hef ég það ekki heldur þannig að ég veit ekkert hvað ég á að gera, ég vil ekki minnast á þetta við hann því ég vil ekki líta út fyrir að vera of uppáþrengjandi.

Æi ég hef bara ekki hugmynd um hvað ég á að gera! Ég talaði eitthvað pínu um þetta í síma í dag, en hann virðist bara helst vilja gleyma föstudeginum því hann skammast sín svo, en það er eitthvað sem að brotnaði inn í mér, ég hef ekki hugmynd um hvað!

Æi ég er hætt að röfla.. Ég er eiginlega bara að vonast til þess að txtfirefly svari.. Virðist geta svarað öllu sem angrar mig:)