Ég ætla bara að byrja á byrjununni svo að þið fáið allt sem gerðist á undan líka!

Kærastinn minn var búinn að vera svoldið svona fjarlægur við mig, ekkert rosalega ástríkur ef við orðum það bara þannig.. Svo þrýsti ég á hann að segja mér og hann loksins ældi því út úr sér á föstudaginn.. Þá var hann víst búinn að vera í einhverri krísu því hann var ekki viss hvort að hann elskaði mig eða ekki, hann sagðist vera hrifinn af mér og þótti gríðarlega vænt um mig! Ég væri besti vinur hans og hann vildi ekki missa mig.. Hann ætlaði að gera sitt besta til þess að halda þessu gangandi

Allt í lagi, við sættumst á það, ætluðum að bæta okkur og reyna að láta þetta ganga, svo vorum við eitthvað frammí sófa ein heima svo 30 mínútum seinna, þegar hann allt í einu brestur í grát og tekur utan um mig og segist elska mig, biður mig að fyrirgefa þetta bull í honum.. Sem ég að sjálfsögðu gerði! ég er ekki beint draumakærastan og ég vissi það líka inn í mér að ég elska hann meira en allt og hann sagði það líka við mig, að hann gæti ekki ímyndað sér lífið sitt án mín!

Við féllumst bara á það að hittast kannski aðeins minna, erum búin að vera svoldið mikið saman og þetta er búið að vera rosalega mikið fyrir okkur, erum saman í skóla líka og bekk þannig að við erum eiginlega alltaf saman! Svo er rosalegt álag á okkur báðum um þessar mundir, erum að útskrifast úr framhaldsskóla og svona. Svo ég held að það sé bara gott fyrir okkur að vera í smá hittapásu..

En þetta er sko málið, mér líður rosalega asnalega, hann er rosalega glaður núna, gott að vera búin að tala um þetta og létta af sér, en mér finnst samt einhvernveginn eins og hjartað mitt hafi brotnað en svo gróið strax aftur! Rosalega furðulegt! Því ég held mér hafi aldrei liðið eins illa og vel á sama deginum!

Eftir þetta kvöld er ég einhvernveginn búin að vera bara í móki, ég veit það alveg núna að hann elskar mig, en það er samt svo sárt að heyra manneskjuna sem maður elskar meira en allt í heiminum segja:,,ég er ekki viss hvort að ég elski þig." Það er gríðarlega sárt! En aftur á móti leið mér einstaklega vel þegar hann henti sér utan um mig og sagðist elska mig og skildi ekki hvað hann hefði verið að bulla!

Æi þetta er allt voðalega skrítið, ég veit að þetta er svoldið langt og vona innilega að einhver kommenti þó að ég viti eiginlega ekki alveg sjálf afhverju ég gerði þennan kork, langaði bara að deila þessu með ykkur!