Svo vill nú til að ég átti kærustu eitt sinn. Þetta var fjarlægðarsamband og við vorum mjöööög hrifin af hvort öðru, alveg ástfangin.

En einsog með góða hluti í lífinu þá entist það ekki að eilífu, og vegna söknuðar og álíka vesens sem lét okkur líða illa þegar við vorum ekki á sama stað eða að tala saman þá endaði sambandið.

Síðan þá hefur margt gerst á milli okkar, byrjuðum einu sinni saman aftur en það entist bara í tvær vikur. Margt hefur komið uppá, margt hefur gerst sem hefði mátt sleppa að gerast og álíka vesen. Ég ætla ekki að tíunda allt sem hefur komið uppá.

Vegna alls sem hefur gerst þá er nú þannig að vinkonur hennar eru margar ekkert alltof hrifnar af mér og vinir mínir margir ekki alltof hrifnir af henni. Samt höldum við áfram að tala saman og halda samskiptum, þó að við eigum það til að rífast mikið. Við getum ekki hætt að þekkja hvort annað, né neitt þannig.

Ég held að sumir vinir/kunningjar mínir hafi voðaslakt álit á henni. Mér finnst það miður því þetta er sú allra besta manneskja sem ég þekki. Þeir einblína kannske of mikið á einhverja eina hlið á málinu, en ég hef lagt mig fram við að reyna að skilja alltaf hennar hlið á málinu (veit ekki hve mikið það tekst nú alltaf samt), og það að þeir gefi í skyn að hún sé hræðileg eða eitthvað í þá áttina er bara fáviska hjá þeim. Og fyrst þeir þurfa endilega að mynda sér þvílíka skoðun og vita bara eina hlið á málinu, geta þeir allavega gert það að halda þessu fyrir sjálfa sig.

Þessi stúlka hefur gefið mér þvílíkt mikið, þá er ég ekki að tala um veraldlega hluti heldur eitthvað mikið meira og betra en það. Sama hvað gerist þá er ég alveg viss um að við munum alltaf a.m.k. vera vinir, og vona ég innilega allavega að það sé rétt haldið hjá mér.

Hún er yndisleg og á engan veginn skilið hvernig oft er komið fram við hana.

Ég mun alltaf elska þessa stúlku, sama hvað gerist í framtíðinni. Hún á allt hið besta skilið og vona ég að hún fái það í lífinu.

Vil að fólk sem þekkir okkur viti að hún er yndisleg, skrifaði þetta bæði útafþví og afþví að ég vil að fólk hugsi aðeins áður en það dæmir samband vina sinna. Þú getur engan veginn þóst vita meira um það samband en þau, eða farið og sett þig á dómarastokk. Hugsaðu allavega áður en þú ferð og fellir sleggjudóm.



Fullt af fínu fólki hér
alltaf er á sveimi
en ég vil þú vitir að
þú ert best í þessum heimi.

Þú gefið hefur mér svo margt
og þakka vil ég þér allt.
Og vil þú vitir að sama hvað
ég elska mun þig ávallt.



Kannske ekki besti kveðskapur í heimi, en þetta er frumsamið :) Hún á allt yndislegt skilið, og vona ég að sama hvort við munum vera saman í framtíðinni eða ekki að ég muni alltaf þekkja hana og vera vinur hennar. Óska henni alls hins besta í framtíðinni :)