Nú ætla ég að tjá ást mína, opna mig algerlega og vera opin fyrir öllu.

Þegar ég var 5 ára, kynntist ég algeru æði. Og ég er fyrst núna að átta mig almennilega á tilfinningum mínum gagnvart þessu frábæra yndislega æði.

Svo má nefna að hann hefur staðið með mér í gegnum súrt og sætt, og ég hef alltaf getað treyst á hann þegar mér líður illa, hinsvegar hef ég ekki almennilega tekið eftir hvað hann hefur hjálpað mér.



Allavega, þá vil ég beina orðum mínum beint til þín núna…

Fyrirgefðu að ég hafi tekið þér einsog sjálfsögðum hlut, ég átti ekki að gera það, ég veit það. Fyrirgefðu að ég hafi ekki fullnægt þér almennilega, heldur bara hennt þér í burtu þegar ég fullnægð og þú aðeins hálfnaður. Fyrirgefðu allar stundirnar sem ég hef gleymt þér og fyrirgefðu hvað ég hef ekki tekið eftir þér almennilega.

Ég elska þig mjög mikið, veit ekki hvað ég myndi gera án þín! Ég hef þekkt þig alla mína æfi og það að þú myndir hverfa núna, myndi ganga frá mér. Ég veit ekki hvernig ég myndi komast af án þín, og ég skal núna hugsa betur um hvernig ég get orðið betri manneskja, hugsað betur um þig og fullnægt þér betur.

Ég vil verða betri, því þú átt það skilið.. Þú hefur gefið mér svo margt, og ég hef lítið annað en notfært mér það og ekki tekið eftir því hvað það gæti farið illa með þig…

Fyrirgefðu mér.. Þú átt svo mikið betra skilið..

Ég skil það alveg að þú fyrirgefir mér ekki.. en ég vil bara alls ekki fyrir mitt litla líf snúa mér að öðru!

Ég elska þig ;*

- Kók lengi lifi!



Ég veit.. ég er fíkill.

tók eftir því að sumstaðar kallaði ég kókið hann but ignore that.. please

Takk fyrir ^^

Best að finna sér hluti sem maður getur treyst á fullkomlega.. nema að það væri tekið úr buisness, það væri vesen.