Ég verð bara að koma þessu út úr mér núna…

Ég kynntist strák og við erum saman núna =) Ég er alveg ógeðslega ánægð og er alveg yfir mig ástfangin, ég get bara ekki hætt að hugsa um hann =) Ég að meira segja kynntist honum í gegnum Huga =) Heh..*roðn*

Ég sakna hans ógeðslega mikið =( Hitti hann ekkert í dag og talaði bara e-ð smá við hann =(
Ef að við erum ekki að tala saman í gegnum síma þá er það msn eða bara sms og öfugt…

Hann lætur mér líða ekkert smá vel og er alltaf að segja hvað ég er falleg og sæt og bara allt…
Og ég er ekki manneskjan sem roðnar en alltaf þegar hann segir e-ð svona við mig roðna ég ekkert smá…Verð eins og Epli í framan og bara allt…

Mig langar svo að vera hjá honum núna! Hann á heima einhverja kílómetra í burtu, við eigum allt sameiginlegt.. Og þegar ég segi allt þá meina ég ALLT Hann er svo yndislegur, kemur mér til að brosa og að hlægja.. =D Mér líður alltaf svo vel hjá honum, ég verð e-ð svo örugg með honum =)
vá!! Ég elska hann af öllu hjarta og ég vona svo innilega að hann elski mig líka *biður til guðs*

ahh vá það var gott að koma þessu út úr sér =) því ekki get ég talað um þetta við vini mína..skilja ekki neitt =)

Well Birna kveður og þakkar fyrir sig =)