Sko, málið er að ég kynntist stelpu. Ég kynntist henni ekki út frá skólanum, ekki á balli, eða út frá sameiginlegum vin. Nei nei, ég kynntist henni í gegnum netið. Meira að segja á huga.

Ég er ekki beint ástfanginn af henni (er það hægt, í gegnum netið?), en shit ég er hrifinn.

Ég hef aldrei hitt hana og aldrei talað við hana, fyrir utan netið.

En shiiit hvað ég er hrifinn…

Og ég er ekki beint týpan sem reynir við stelpur í gegnum netið.

Hef aldrei reynt við hana á msn, hef aldrei sagt henni að ég sé hrifinn af henni, hef aldrei sagt henni hvað hún sé falleg. Mér finnst bara eitthvað svo kjánalegt að segja henni það á netinu…

Hef reyndar sagt henni að hún sé alveg geðveikt skemmtileg, en samt…aldrei sagt henni hvað mér virkilega finnst.

Það hugsa örugglega flestir sem lesa þetta “af hverju býðuru henni ekki bara í bíó eða eitthvað? til að þið getið hist”.

Ég er ekki alveg það heimskur, væri alveg örugglega búinn að því, ef ég byggi í sama bæ og hún. Auðvitað þarf ég að búa nokkur hundruð kílómetrum í burtu.

Hún spurði reyndar einu sinni hvort það væri einhver möguleiki að við gætum hist einhverntímann… Veit ekki hvort það þýðir eitthvað.

Við svona, eiginlega, eigum “okkar lag”.

Shit, mér finnst þetta svo fáránlegt. Að vera hrifinn af stelpu í gegnum netið.

Veit ekkert hvað ég ætti að gera, vill ekki vera eitthvað að reyna við hana í gegnum netið…

Vááá hvað þetta er ömurlegt, að vera hrifinn, en vita að maður mun líklega aldrei hitta stelpuna. Og ef maður mundi hitta stelpuna, myndi maður varla geta verið í einhverju sambandi, nema fjarsambandi, sem mér finnst…ömurlegt.

Annars er ég ekkert að spá í sambandi við þessa stelpu neitt hehe… er bara svo hrifinn…

Sem er alveg ömurlegt, en samt svo gott eitthvað.

Hún er alveg örugglega ekki hrifinn af mér, ekki það að hún sé eitthvað leiðinleg við mig, alls ekki hehe, bara…mér finnst svo kjánalegt að hugsa útí það…

Reyndar…reyndar hefur hún kallað mig “krútt” og eitthvað meira í þá áttina…

Og alltaf þegar hún kemur á msn, þá lifnar svona yfir mér. Ég verð glaðari, og brosi meira, og hlæ meira…

Well, ég veit ekki hvort ég ætti að þora að senda þennan kork inn, en ég ætla samt að gera það…

Já. þú veist alveg örugglega hver ég er núna, og þótt þér finnist ég vera algjört freak, please don't hate me…
We're just, two lost souls swimming in a fish bowl, year after year… - haha :D