Ég og vinir mínir erum að fara til útlanda í svona djamm ferð svona rétt áður en allt námið hefst aftur í haust.
En ég er svo æðislega óheppinn eitthvað í dag að ég kemst að því að fyrrverandi kærasta mín (sú eina sem ég hef elskað á minni stuttu ævi) er að fara líka til útlanda með fjölskyldu sinni og kærasta sínum. Ég er svo ekki að meika að fara sjá þau öll saman. Meina asnaleg tilviljun að þau séu í sama flugi og læti. Ráð ?