Já strákar, hér kemur ein spurning til ykkar.
Ok, maður fær alltaf svo mismunandi svör við þessari spurningu og mig langar að tékka hvað hugarar segja við þessu.
Er betra ef stelpan leikur svona “hard to get”? Er það meira turn-on eða hvað, að þurfa að elta stelpuna? Ef já, hvernig? T.d. á maður þá aldrei að hringja í strákinn, láta hann alltaf hringja? Og á maður að láta hann hafa frumkvæðið að því að taka næsta skref í sambandinu?
Hef verið að velta þessu mikið fyrir mér….mér hefur nefnilega alltaf verið sagt að láta strákana elta mig og hef oftast gert það….en sumir strákar eru bara feimnir, á maður þá bara að taka málin í sínar hendur? :/