Hmh, fann mánaðargamalt ljóð inná tölvunni minni. Lagaði það svolítið til og svona og ákvað síðan að prófa að senda það inn.

Ég skrifaði það btw um huganotanda sem er með huganikk mjög mjög mjög framarlega í stafrófinu :)






Er englar kitla maga minn,
er blómin dansa við mig.
Ég við lífið tilgang finn
er ég horfi á þig.

Augun heilla, brosið einnig
gleðin af þér skín
það er svo gott að segja við þig
“Þú ert stúlkan mín”.

Svo fullkomin og yndisfríð
ová, ég elska þig!
Og það besta lífið við
er að þú elskar mig.