Halló allir!
Málið er að ég er/var að spá í einum strák. Voða fínn strákur, en samt soldið ólíkur mér.
Ég var bara búin að tala við hann í gegnum msn og þar var hann ýkt fínn og allt bara, en svo þegar ég hitti hann þá var bara eins og öll hrifning færi.
Er samt bara búin að hitta hann einu sinni og veit að það er kannski of fljótt að dæma hann strax. En samt, finnur maður eiginlega ekki alltaf strax hvort þetta sé að virka eða ætti ég að hitta hann aftur?