Já ég ofnota kannski þessa korka hérna en það er bara vegna þess að ég er mjög mikið fyrir að tjá mig.
=/

Það var samt ekki það sem ég ætlaði að skrifa um.

Í gær fór ég á leiðinlegustu árshátíð ever. Árshátíð Bónus. Er nottla ekki í ástarsorg yfir því - það væri bara sorglegt.

En já. Fyrrverandi minn var þarna og ja ég gat ekki betur séð en hann skemmti sér alveg ágætlega.
Þó að ég hafi nú gert það líka - svona inn á milli þess að vera að drepast úr leiðindum.

Mig langaði bara að fara og tala við hann. Það var svo skrítið að vera í sama herbergi og hann og sitja ekki hjá honum.

Er það bara ímyndun í mér að hann sé eitthvað búinn að jafna sig á þessu meira en ég? Eða þiðvitið.
Ég svona ógeðslega fúl yfir að hann sé að kítla einhverja stelpu, geri geðveikt mikið mál yfir því þannig séð: nöldra í bestu vinkonu minni útaf því og hún var að drepast úr leiðindum fyrir þannig að ég er hissa yfir því að hún hafi ekki bara dáið á staðnum =P

Þó að það hafi verið eitt lítið kítl kannski yfir allt kvöldið. Síðan fatta eg að hann megi kítla hana eins og hann vilji og verð meira fúl út í mig fyrir að hafa verið fúl.

Síðan jújú hann vinkaði mér þegar hann annað hvort loksins sá mig eða þegar hann var kominn nógu og nálægt til að þetta væri ekki of áberandi og svo þegar það var verið að reka mann út þá svona sagði hann hæ og brosti og ég náði að kreista út úr mér einhverju sem líktist meira hósta en hæ og brosið var örugglega svipað og vangefni svipurinn á mér á hópmyndinni í 10. bekk.

(Heimska árshátið, máttum ekki vera lengur en til 12 þau sem voru yngri en 18)

Þetta er alveg pottþétt tíbísk hugsun hjá mér (gera úfalda úr mýflugu) en ég var að pæla hvort það geti verið að hann sé kannski bara kominn yfir mig strax (hættum saman 20. mars eða eitthvað). Eða hvort hann sé bara að leyna því svona skrambi vel =/
Þannig að mig vantar einhver ráð til að láta mér líða betur því ég er að fara í próf og “This is not something I need right now” að vera að pæla í þessu.

Og svo er ég líka að hafa áhyggjur að ég eigi eftir að enda sem einhver piparjónka með íbúðina fulla af köttum. (Sem væri ekki gott því ég er með kattaofnæmi =(..)

Anyway..
~Bollasúpa =)