Já…ég veit ekki alveg hvort þetta sé eitthvað stórt vandamál en ég verð allavega að koma þessu út úr mér, hvað sem þetta er. Þetta er soldið margþætt vandamál þannig hér kemur nr.1, svo restin seinna :/

Vandamál 1: Úff hvar á ég að byrja….hmm ok, ég á eina vinkonu sem er ekki mjög góð vinkona. Ég hef nefnilega lent í því með hana að við vorum með nokkrum strákum og ég var orðin frekar hrifin af einum(x) og hún af öðrum(y). Hún spurði mig hvort ég væri hrifin af X og ég sagði já. Svo fór Y að reyna við einhverja aðra stelpu og þá varð hún eitthvað fúl og fór bara að kela við X fyrir framan mig(vil taka það fram að hún var ekki undir áhrifum vímuefna en hann var það).

Nú jæja, þetta var fyrir sirka hálfu ári og ég löngu búin að gleyma þessu(og X, enda deletaði vinkona mín númerinu hans úr símanum mínum). Svo fyrir 4 vikum fór ég og þessi vinkona mín í partí sem einhver vinur hennar sagði okkur að koma í. Vinur hennar var frekar sætur og ég fór að tala við hann þegar við komum þarna. Þá kemur vinkona mín og sest á hann og fer að kyssa hann o.s.frv. Þá fór ég bara í sófann og fór að tala við annan strák og komst að því að hann var mjög skemmtilegur og með góðan húmor o.s.frv. Við vorum eitthvað farin að flirta og svoleiðis, en þá kemur vinkona mín og sest hinum megin við hann fúl á svipin. Hún er ekkert að skafa utan af því, byrjar bara á því að sleikja hann á kinnina og eyrun og kyssa hann. Hann var ekki alveg að fíla þetta og snýr sér aðeins undan. Hún gerir þetta ekki aftur en er allan tímann eitthvað að fikta við hann og ég náttúrulega hinum megin að tala við hann og flirta.Svo þurfum við að fara og ég og strákurinn skiptumst á númerum(vinkona mín tók ekki eftir því). Þegar við komum út drífur vinkona mín sér á undan mér í bílinn þvílíkt fúl. Ég alveg öhh er eitthvað að? Og þá segir hún við mig að ég eigi ekki að vera hössla umræddan strák þegar hún sé að hössla hann. Ég bara what? Ég var að hössla hann á undan þér…?!? Mér fannst svona frekar spes að heyra þetta frá henni…..ég fór síðan út viku seinna og var í tvær vikur og hún er ekkert búin að tala við mig síðan þetta var nema einu sinni á MSN og þá spurði hún mig hvort ég væri eitthvað búin að tala við gaurinn…

Hvað finnst ykkur? Eins og ég sagði er hún ekkert búin að tala við mig í skólanum eða neitt, ég hef reyndar ekki mikið reynt að tala við hana en þegar ég hef sagt hæ svarar hún ekki. Hefur hún rétt á því að vera svona fúl? Ég var eiginlega frekar fúl út í hana að geta aldrei látið þá stráka í friði sem hún veit að ég er að spá í….
Með fyrirfram þökk, LiljaV.

PS: Þess má geta að bæði ég og vinkona mín vorum bláedrú í þessu partíi þar sem aðeins var boðið upp á landa. Strákurinn var það hinsvegar ekki.

PS2: Ég skammast mín alls ekkert fyrir aldur minn(16 ára) en vinsamlegast ekki dæma mig og svara öðruvísi út af honum.