Hæ ég er 18 ára stelpa og ég er svo ástfangin af vini mínum og er búin að vera það lengi frá 2003!
Hann veit það vel og notar sér það ef hann vill fá eitthvað. Hann hefur sagt að hann sé ekki tilbúin í samband, og af því að ég er aðeins yfir kjörþyngd enn ekkert neitt offitusjúklingur, þá sagði hann, Ég vil ekki vera með þér í sambandi, útaf þá gætum við ekki gert eins margar stellingar í kynlífinu eins og ég vil!! Þó hann sagði þetta og ég var mjög sár, þá get ég ekki hætt að hugsa um hann. Enn sama hve illa hann fer með mig og sama hve lítið ég tala við hann þá er ég alltaf jafn ástfangin af honum…Ég reyni að segja við mig að hann sé bara aumingji og asni og hef reynt að “hætta” að vera ástfangin af honum enn ekkert gengur…Þetta er ömurlegt! Það eru komin 3 ár og ég get ekkert hætt að hugsa um hann, var komin með rosa góðan gæja enn ég gat ekki hugsað um neitt annað enn HANN!!!
Getur einhver gefið mér einhver ráð til þess að losna við þessa “ÁST” ??????