Hvernig er hægt að elska einhvern sem fer ógeðslega illa með mann aftur og aftur? Hvernig er það hægt?

Ég er svo reiður út í sjálfan mig fyrir að geta ekki gleymt svona manneskju sem er einungis annt um sjálfa sig og hugsa ekkert um hinn aðilann í sambandinu. Ég veit ekki hvað ég á að gera. Ég er ráðalaus. Vinir mínir eru eflaust komnir með ógeð af vælinu í mér, og ég fer bráðum að fá það líka.

Ég vildi óska þess að það væri hægt að slökkva á tilfinningum manns. Það myndi gera þetta svo miklu auðveldara.

Ég vil segja að hún sé ömurleg, en innst inni get ég það ekki, þar sem ég elska hana svo mikið. Ég hef áður ætlað að loka algjörlega á hana, en alltaf hætti ég við það. Ég veit ekki hvar ég enda…
Gaui