Æjj ég er alveg glötuð stundum! Ég get ekki þagað yfir persónumálunum mínum!
Eins og t.d. núna, með því að segja þetta hérna núna þá á eitthvað fólk sem ég “þekki” hérna á huga á eftir að spurja mig eða eitthvað æjj mér er sama…

Allavega málið er að í skólanum mínum er strákur sem er reyndar ári yngri en ég þekki hann ekki en hann er so sædur..:$ og ég tók ekki eftir honum fyrr en ég var að labba útúr stofu og hann brosti svona virgjarnlega til mín, ég hafði svosem séð hann áður en vissi ekki að hann hafði sko.. þessa heillunarhæfileika sem ég er bara ÞAÐ sem ég leita að í strákum skohh…

Og ég bara omg.. hver var þetta…! Og svo eitt skiptið er ég að fara úr teríunni og hann er svona allt í einu fyrir framan mig og hann horfði einhvernvegin svona í augun á mér.. og í bæði skiptin var ég að flýja þetta skohh….

Allavega… vinur minn á kærustu sem situr á borðinu og situr stundum á borðinu, fattaði það ekki fyrr en þegar hann sat á okkar borði og þessi strákur kom eitthvað til hans og stríddi honum eitthvað og hljóp svo í burtu og ég bara :O

Okei, ég var ekki búin að segja neinum frá þessu, en þessi vinur minn er mikið að stríða mér alltaf og ég sagði við hann: “ég vil kynnast nýju vinunum þínum á hinu borðinu!” og hann bara “NEI! þú getur bara fundið þér þína eigin vini og þú kemur sko ekki nálægt borðinu” …. og það var þar sem ég missti það útúr mér… ég sagði : “já en! .. ég er hrifin af einum strák..” og hann bara “Oj! langar þig að kynnast krökkunum á hinu borðinu til að leita þér að hössli! .. þú veist þau eru öll ári yngri?!” Og ég sagði “já..” ..
Þessar umræður okkar voru mjög ruglingslegar allavega… ég sagði honum að segja engum! Og þá kom kærastan hans og vinkona og hann sagði “á ég að segja?? haa??” Eitthvað svona, var að hóta að segja og hann ætlaði að nota þetta gegn mér og eitthvað og ég sagði við hann, “allt í lagi! segðu bara!.. þú veist ég vil ekki að þú segir en ég meina.. ” Og bara bara.. viltu í alvöru að ég segi?? og ég sagði við hann: “nei, þú veist ég vil það ekki, en ég meina.. segðu bara ef þú þorir ” sagði eitthvað í þá áttina og hann SAGÐI ÞEIM!!!

Ég bara “ohhhh… ég trúi þér ekki!” þetta var alveg .. jæja ég get svosem sjálfri mér um kennt en samt.. HANN ER ALLAVEG EKKI VINUR MINN LENGUR!!!
Nei jú hann er það.. ég á mjög erfitt með að vera í fílu útí fólk og hann spurði mig í dag, nei í alvöru, hataru mig í alvöru fyrir þetta?? og ég sagði “neinei.. breytir svosem engur þar sem ég hataði þig fyrir” (löng saga)

En já.. er ég búin að klúðra þessu?? ég má ekkert koma nálægt þessu borði án þess að vinur minn fari að segja öllum bara! og ohhh omg… svo var ég að nudda vin minn sem var ekki góð hugmynd þegar hann labbaði svo framhjá og þetta leit svoldið asnalega út… og líka hann kom með mér í sjoppuna og ég keypti handa honum kók og það leit líka soldið asnalega út….

Ohh ég vona að hann haldi ekki að ég og hinn vinur minn séum saman eða eikkað:S:S
Ég var eitthvað að tala við vin minn þegar hann sat á þessu borði og ég sá að hann brosti til mín.. ohh ég er að gera of mikið úr þessu öllu!:$:$:$