Ohh .. það er alltaf strákavesen á mér:S Ég er tvisvar búin að heyra það í vikunni að ég veð í strákum sem er bara algjört kjaftæði:S

Það er oft eitthvað strákarugl á mér en ég er samt ekkert vaðandi í strákum.. allavega enginn sem ég hef haft áhuga á :S En það kemur fyrir og alltaf klúðra ég því.

Núna einmitt klúðraði ég einu. Var s.s. einn strákur sem kemur stundum að í vinnuna til mín að tala við vinnufélagana mína því hann er vinur þeirra og hann hringdi bara alltí einu í mig og ég vissi ekkert hvar hann fékk númerið hjá mér:S
Mér fannst það alveg einstaklega gaman þó að ég vissi ekki hver hann var því hann vildi ekki segja hver hann var. Svo fattaði ég það og svona og hann gerði bara grín að því og vildi ekki viðurkenna en það var bara skondið og svo senti hann mér sms og sagði hver hann var. Svo er maður eitthvað að spjalla við hann mikið og svona og hann vill hitta mig á laugardeginum, bæði um daginn og kvöldið!

Ég bara vááá.. mjög hissa:S hafði enga hugmynd um að hann hefði einhvern áhuga… en ég var samt aldrei viss. Hann er soldill stríðnispúki og ég var ekki að taka því að hann væri í alvöru að vilja hitta mig og svona.

Það hefði nú alveg verið frábært ef ég hefði hitt hann en það varð aldrei neitt úr því:S Málið var að við vorum bæði að vinna mikið.. en ég hafði samt líka verið að reyna að ná sambandi við hann eithvað og stundum svaraði hann ekki smsum:S

Svo er ég að tala við einn vin hans og ég segi honum allt af létta og hann bara mjööög hissa og ég spurði hann afhverju og þá sagði hann mér að hann hefði verið með annari stelpu seinustu helgi sem hann var alveg brjálæðislega hrifnn af og hann hringdi sko í mig á mánudeginum….

Það hafði kannski verið ástæðan fyrir því að allt fór úrskeiðis og hann svaraði ekki smsum:/

Allavega er ég hætt að gera eitthvað af fyrra bragði og sjá bara hvort að hann hafi samband við mig og ég held það sé alveg það rétta… Mér var farið að finnast ég sjálf vera bara uppáþrengjandi:S

Allavega, geðveikt mikill bömmer þegar maður er alltaf valin sem nr. 2 .. Alltaf einhver önnur stelpa í þessu strákaveseni hjá mér ef ég hef áhuga… *andvarp*

Er ég ekki annars að gera rétt?