Uuuuu þekki stelpu sem hefur verið að gera mig brjálaða með endalausum spuringum um einhvern gaur sem hún er brjalæðislega hrifin af. Málið er þannig að ég er ekki mannana best til að hjálpa stelpugreyinu þannig að ég ákvað að skella þessu hér inn og vonandi getið þið hjálpað mér að gefa henni réttu ráðin.

Allavega það sem ég hef heyrt frá henni þá var eitthvað ball í gangi og þessi vinkona mín tók þennan strák sem hun er búin að vera hrifin af með sér heim.. að hennar sögn gerðist ekkert, það eina var að þau gerðu var bara einfaldelga að kúra… í dag langar henni svo óskaplega að vita hvort að það verður eitthvað meira á milli þeirra. En hún þorir ekki að spyrja hann.. hvernig er hægt að komast að svoleiðis hlutum er mín spurnig og endilega gefið mér einhver góð ráð ?
- Er gaman af biluðu bulli? Skoppaðu þá eins og fiskur í algjöru rugli!!