Ég er búinn að vera að tala við stelpu á msn núna síðustu daga. Búinn að senda henni mynd og hún búin að senda mér. Málið er bara það að þetta er með þeim fallegustu stelpum sem ég hef nokkurntíman séð og ég væri allveg til í að hitta hana. Held að henni finnist eitthvað varið í mig. Allaveganna er hún alltaf að tala við mig á msn og segja mér eitthvað sniðugt og ég hef ekki verið blockaður ennþá af henni. Þannig að henni hefur ekkert litist ílla á myndina. En hvernig brýtur maður ísinn svona þegar maður hefur ekki hitt stelpuna. Væri allveg til í að hitta hana og kannski fara í bíó eða eitthvað.

Hvað segir maður á msn til þess að fá stelpu til þess að vilja koma í bíó eða eitthvað þannig. Hef nefninlega verið sjálfur mjög fordómafullur gagnhvart því að hitta einhvern sem maður kynnist á netinu en er á allt annari skoðun núna.

Hvernig er svo best að komast að því að hún vilji hitta mann án þess eiginlega að spyrja að því?
Eða þið vitið hvað ég meina, hef aldrei hitt neina sem ég hef spjallað við á netinu en væri til í að hitta þessa.

Og svo bara, hver er ykkar reynsla af því að hitta stelpu á netinu. Eða náttúrlega hitta strák ef að það eru stelpur að lesa þetta.
Cinemeccanica