Mig dreymdi draum um daginn þar sem ég hitti stelpu.

Draumurinn fjallaði um mig og þessa stelpu en þar var ekkert kynlíf í gangi þar var bara rómantík.

Ég hef aldrei "meðvitað“ hitt þessa stelpu en ég fann fyrir ást, heitustu ást sem ég hef á æfi minni fundið. Að vísu hef ég ekki oft fundið ást. En þetta var ást.

Hvað er til bragðs að taka? Hvað táknar þetta? Og hefur einhver annar en ég lent í þessu?

Ps. maður hefur lent í einstaka ”skoti" (að vera skotinn í einhverri) en sjaldan ást, en ég skil muninn þar á milli.