Til að byrja með vil ég segja að þessi korkur hefur engann tilgang. Ég er ekki að segja frá hamingu minni, ekki að segja frá óhamingju minni, ekki að byðja um ráð eða neitt annað. Hann er tilgangslaus. Now that you know that, ekki lesa hann og koma með skítakast um að hann sé tilgangslaus, ok ? :)

Allavega, ég á kærasta. Við erum búin að vera saman í nærri 4 mánuði. Hann hefur hrósað mér fyrir augun mín (auðvitað, það er einhvað sem flestir strákar hrósa manni fyrir, ekki satt?.. það er bara sona klisja sem allir segja) svo um daginn ákvað ég að testa hann smá. Ég er með græn augu, augljóslega græn, og ég setti í mig alveg vel bláar linsur. Fór til hans og 2 klukkutímum seinna var hann ekki enþá búin að taka eftir breytingunni á mér. Samt var hann oft búin að horfa í augun mín. Svo spyr ég hann.

Ég : Horfðu á mig, sérðu enga breytingu á mér?
Hann : uuuuu…
Ég : Einhvað sem er ekki eins og vanalega á mér, ekki fötin mín eða einhvað álíka.
Hann: uhm *vandræðilegur* Þú ert með tagl?

Ég sprakk ur hlátri, hversu típískt svar frá stráki :P. Svo horfði hann á mig enn meira en fattaði ekkert, svo sagði ég honum, ég er með blá augu.. eftir að hafa horft á mig í dágóðastund eftir að ég sagði þetta, sá hann loks breytinguna. Svo náttúrulega fór hann að reyna og reyna að afsakasig, en ég bara hló. ^^

Heppinn hann að ég get bara hleygið að þessu, móðgast ekki :P

Mér finnst þetta enþá fyndið “uuu þú ert með tagl?”