Ok svona er málið, ég byrjaði með stelpu fyrir um 4-5 vikum, til að byrja með naut ég þess bókstaflega að vera með henni, talaði oft við hana í síma og leið vel með henni en eftir c.a. 2 vikur leið mér eins og hún væri farinn að ofsækja mig, hún sendi mér stanstlaust sms og hringdi endalaust í mig, ég slökkti stundum á símanum því að ég nennti ekki að tala við hana. Þegar við vorum búin að vera saman í c.a. 3 vikur var hún búin að senda mér í kringum 100 sms og ég var eiginlega að verða brjálaður á henni og nenni núna eignilega ekki að vera með henni, veit bara ekki hvað ég á að segja við hana, mér líkar alveg við hana en hef bara ekki “þannig” áhuga á henni.. meina hvað á ég að segja við hana, mig langar alveg að vera vinur hennar en mig langar ekki að særa hana :S
Munið allaf hvert sem þið farið orðin sem hinn vitri heimspekingur