Jæja þeir sem hafa séð mig hérna undanfarið hafa ábyggilega tekið eftir því að ég hef verið mjög bitur undanfarið. Og ég ætla að útskýra allt það núna afhverju það er.

Þetta hófst fyrir rúmlega 2-3 árum þegar ég varð fyrst skotinn í stelpu sem svo aukst eftir árunum í það að ég varð í fyrsta sinn ástfanginn á ævi minni af þessari stelpu. Þessi stelpa var með strák sem hélt sífelld framhjá henni og var almennt vondur við hana og þau voru saman í 2 ár þangað til þau hættu saman nýlega ég sagði stelpunni þá hug minn.
Jújú hún sagðist alveg hafa áhuga en ekki áhuga á neinu sambandi eða neinu þannig en hún sagði það eftir smá kelerí en jæja ég reyni að taka þetta ekki mikið á mig en svo er ég að tjilla eftir að hafa nokkuð oft talað við hana og ýmislegt og þá er ég bara með vinum mínum þegar ég heyri að hún sé bara að ríða besta vini fyrrverandi kærasta síns og jafnvel kannski samband á leiðinni. Þannig mér finnst ég vera svikinn þegar hún segist ekki vilja samband en byrjar svo með öðrum gaur. En auðvitað er þetta verst þegar maður er í smábæ þar sem allir þekkja alla.