haha ég er algjör auli. Ég er að deyja mér finnst einn strákur svo sætur, en hann veit ekki einu sinni að ég er til held ég. Ef hann veit að ég er til þá veit hann allavega ekki hvað ég heiti! Hann er bara fallegur samt, og þegar ég er á tónleikum eða eitthvað sem hann er líka á, þá stari ég endalaust á hann! Get bara varla litið af honum. Hann á kærustu.. komst að því um daginn og varð leið, haha. Ég er sjálf á föstu, en það er í lagi að vera pínuskotin, fyrst etta er manneskja sem ég hef aldrei talað við og á líklega aldrei eftir að tala við því ég verð svo paranoiuð ef ég sé hann. Reyndar er þetta allt bara voða fyndið finnst mér samt, ég er alltaf eitthvað svo aulaleg.

skemmtilegt..