Jæja, ég er núna í smá vandræðum. Það er nefnilega þannig að ég og einn gaur sem ég var “með” ákváðum að hætta að tala saman, bara að hætta öllu.
Það var tveim dögum fyrir jól og ég er búin að vera frekar down síðan og naut jólanna ekki eins mikið og ég hefði getað.
En svo var ég að komast yfir hann og gleyma honum og þá kom hann á msn í gær og sagði “hæ hæ gleðileg jól sæta ;)” og ég bara já, byrjaði að tala við hann og hann sagði mér að hann sakanði mín og sá eftir því að við hættum öllu og að hann vildi byrja aftur saman.
Ég er bara virkilega ráðvilt núna og ég veit ekki hvað ég á að gera, ég er búin að tala við fólk um þetta og það segja allir mér bara að gleyma honum en ég get það ekki. Hjálp :(
I love you, in a really, really big pretend to like your taste in music,