Þegar ég horfi á þig missir hjartað úr slag.
Mér finnst það ótrúlegt að ég sé svo heppin að hafa eiga þig.
Ég vil eyða lífi mínu með þér, hlæja og gráta með þér, standa með þér, vera hjá þér -alltaf.
Get ekki ímyndað mér lífið án þín,
þú komst bara inn í það með látum án þess að gera nokkurt boð á undan þér.
Nú veit ég að þú ert það besta sem fyrir mig hefur komið.
Ég gæti horft í fallegu augun þín í sólarhringa.
Það eru engin orð sem lýsa hversu frábært mér þykir að vera hjá þér, kyssa þig og knúsa.
Finna ilminn af þér, snerta þig og tala við þig.
Ég dáist að þér.
Stjörnurnar hverfa ekki úr augunum á mér eftir að ég kynntist þér, allir þessir yfirborðslegu hlutir sem áður skiptu mig máli eru horfnir af sjónarsviði mínu.
Þú ert allt sem ég vil og þú átt mig ein.
Enginn mun nokkurn tíma vera mér það sem þú ert mér.
Fiðrildin fljúga um í maganum á mér og það er yndisleg tilfinning.
Frá fyrsta degi hefurðu átt alla mína athygli, óskipta.
Við höfum upplifað margt gott og slæmt og við höfum alltaf leyst málin -saman.
Þú ert fullkomin eins og þú ert.

Ég elska þig.

Til minnar heittelskuðu<3