lendiði einhvertíman í því að sjá manneskju sem þið eruð viss um að sé rétt fyrir ykkur, einhver sem færir ykkur allt sem ykkur vantar andlega, og svo hittið þið hana og komist að því að hún er svo mikklu mikklu meira en þið hefðuð ýmindað ykkur. maður sendir henni sms en þorir svo ekki að skoða símann þegar kemur til baka, því það yrðu svo mikil vonbrigði ef það væri frá einhverjum öðrum. einhver sem gerir ykkur á sama tíma ótrúlega hamingjusöm að hún skuli tala við ykkur, en í senn eruði vansæl útaf óvissunni að kanski hefur hún ekki áhuga, kanski á allt það sem þið hafið byggt upp í huganum eftir að hrinja, allt það sem ykkur hafði dreymt um að gæti gerst ef þið væruð saman….