Ég er á föstu með yndislegum strák, sem ég virkilega er hrifin af. Við erum búin að vera saman í rúmlega einn og hálfan mánuð, en vandamálið er bara að hann á það til að beila á mér.. eða í rauninni, þá beilar hann næstum á mér í hvert einasta skipti sem við ætlum að hittast. Alltaf með eitthverjar ömurlegar afsakanir “Úlpan er í þvotti..” Ég er búin að vera að spá í það að hætta með honum nokkrum sinnum útaf þessu, meira að segja var ég alveg ákveðin í því að gera þetta tvisvar, en hætti alltaf við þegar ég næ loksins að hitta hann til að segja honum upp því hann er bara svo yndislegur þegar hann nennir því. Mér er bara farið að líða virkilega illa útaf þessu. Líður eins og hann hafi bara nenni ekki að hafa áhuga á mér útaf þessu..

Ekkert í rauninni sem þið getið hjálpað mér með, langaði bara að koma þessu frá mér..:)